Jæja þá styttist í fjörið. Allt að verða klárt fyrir hátíðina.
Mussur, vesti, töskur, húfur og fl komið upp á slár og tilbúið á
markaðinn á föstudaginn. Ég hvet alla til að mæta hippaklædda á
föstudagskvöldið og taka þátt í skemmtuninni. Þjóðlagakvöldið
byrjar kl 20.00 og verður fram eftir kvöldi og dagskráin er mjög
flott. Hvernig var hippinn í útilegu? og Hvernig var herbergi
hippans?
Þar sem hipparinir
voru nægjusamir og nýtnir langar okkur til að athuga hvort ekki
leynast hjá ykkur, gamlir munir sem tengjast sögu hippans, svo sem ljós, lampar,
gardínur, fatnaður, skór, ýmiskonar efnis- og garn afgangar ,
húsbúnaður, teppi , mottur og ýmislegt fleira sem nýta mætti við
uppsetningu á veglegri sýningu á hátíð hippans á komandi
árum.
Endilega hafið okkur
í huga þegar tekið verður til í geymslunni næst
Hægt er að koma
munum til Þórunnar á Brimhólabraut 21 eða hafa samband í síma
899-2515 og við sækjum
Sjáumst á föstudagskvöldið
Með hippakveðju